Ljósheimar á Facebook Íslenska English

Ljósheimaskólinn

Frá stofnun Ljósheima árið 2002 höfum við boðið upp á fjölda námskeiða. Vegna stóraukins áhuga fólks var afráðið að stofna Ljósheimaskólann haustið 2005. Boðið er upp á þriggja eða fjögurra ára nám við skólann. Hann starfar frá september til maí.

Skólinn er hugsaður fyrir alla þá sem hafa áhuga á að þroska sig andlega og öðlast víðari heimsmynd. Þetta er ekki einungis til gamans gert heldur á námið að nýtast manneskjunni til þess að bæta gæði lífs síns ytra sem innra. Námið í skólanum er byggt upp á fyrirlestrum, fræðslu, hugleiðslu og öðrum æfingum. Nemandinn tekur á virkan hátt þátt í tímum auk þess sem gert er ráð fyrir að unnin sé heimavinna á milli tíma.

Sólbjört Guðmundsdóttir heldur utan um skólann og námið. Hún er reikimeistari og hefur lokið námi frá Etherikos International School of Energy Healing and Spiritual Development. Árið 2010  lauk hún kennaranámi í Einingarblessun á Indlandi.  Hún er kundalini jóga kennari og lauk námi í jógískri ráðgjöf (e. kundalini therapy) vorið 2012.

Sólbjört hefur síðan 1997 unnið við heilun, gerð námsefnis og kennslu í andlegum þroska á Íslandi, Noregi og Bandaríkjunum.

Um námið

Í náminu tekur nemandinn virkan þátt í tímum með hugleiðslu, umræðum og tjáningu á upplifun, í orði og litum. Stór þáttur í náminu er þjálfun einbeitingar, efling skynfæra og fíngerðari skynjunar. Á milli tíma vinnur hver og einn nemandi heimaverkefni sem spannað geta allt frá 5 mínútum eða út námsárið.

Með þessari vinnu lærir einstaklingurinn að þekkja betur styrkleika og veikleika sína. Hann lærir hvar hann stendur vel að vígi og hvernig má styrkja þá þætti sem vinna þarf með. Námið styður nemandann í að styrkja sig og efla og að taka skref sem stuðla að auknum þroska og innihaldsríkara lífi.

Árgjald er 85.000.  Hægt er að skipta greiðslum niður.

Nýr árgangur byrjar á hverju ári í september.  SKÓLAÁRIÐ 2012 – 2013 HEFST 19. SEPTEMBER OG STENDUR SKRÁNING YFIR.

Til að skrá þig eða fá nánari upplýsingar getur þú sent póst á solbjort@ljosheimar.is eða hringt í síma 862 4546