|
Ljósheimar
|
|

Kristallakjarnarnir tilheyra því sem kallað er tíðnilækningar og vinna á eða í orkunni. Þeir geyma tíðni kristalla og nokkrir þeirra geyma einnig tíðni jurta, sem nýtist orku þess er kjarnana tekur. Ekkert efnislegt er í kjarnanum, aðeins tíðni. Svo kjarninn geymist vel er notað koníak og okkar einstaka íslenska tæra vatn. Kjarnarnir hafa áhrif á fíngerðari tíðnisvið orkukerfis mannsins. Þeir hjálpa í raun þér og orkukerfi þínu að muna það ástand sem alltaf hefur verið; fullkomnun. Þeir tengja inn það sem þú hefur alltaf haft. Þegar kjarnarnir byrja að rétta af orkuna og þú ferð að muna sérðu hvað er ekki í jafnvægi í lífi þínu. Kjarnarnir eru best fallnir til að vinna með tilfinningalegt og huglægt ójafnvægi og hafa áfhrif á tilfinningar, hugsanir, meðvitund, skoðanir og óleyst áföll sem sitja eftir í orkunni. Oft getur fólk hins vegar fundið að þegar hugsanir og tilfinningar breytast, breytist líkamleg líðan til hins betra.
|
|
|
Speki
Spurđu sjálfan ţig stöđug "hvađ er rétt ađ gera". - Confusius
Kyrrđarstund
Við í Ljósheimum bjóðum upp á kyrrðar- og heilunarstund í hádeginu frá 12:15 - 12:45, er hún vikulega, alltaf á mánudögum. Aldrei hefur verið mikilvægara að finna kyrrðina innra, að sækja sér birtu og heilun. Við vonum að sem flestir nýti sér þetta og taki fjölskyldu sína, vini og vinnufélaga með :) Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
|