Það gleður okkur að kynna Ljósheimaskólann, sem er starfræktur við Ljósheima.Frá stofnun Ljósheima árið 2002 höfum við boðið upp á fjölda námskeiða. Vegna stóraukins áhuga fólks var afráðið að stofna Ljósheimaskólann haustið 2005. Boðið er upp á fjögurra ára nám við skólann. Hann starfar frá september til maí en einnig er boðið upp á sumarönn sem ýmist er í formi námsferðar hérlendis eða erlendis. Skólinn er hugsaður fyrir alla þá sem hafa áhuga á að þroska sig andlega og öðlast víðari heimsmynd. Þetta er ekki einungis til gamans gert heldur á námið að nýtast manneskjunni til þess að bæta gæði lífs síns ytra sem innra. Námið í skólanum er byggt upp á fyrirlestrum, fræðslu, hugleiðslu og öðrum æfingum. Nemandinn tekur á virkan hátt þátt í tímum auk þess sem gert er ráð fyrir að nemandinn vinni heimavinnu á milli tíma. Skólinn hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum þar sem um þriggja ára nám er að ræða. Í ákveðnum tilfellum er hægt að láta meta sig inn í skólann.
Sólbjört Guðmundsdóttir heldur utan um skólann og námið. Hún er reikimeistari og hefur lokið námi frá Etherikos International School of Energy Healing and Spiritual Development. Auk þess hefur hún sótt fjölda námskeiða út um allan heim. Nú síðast lauk hún kennaranámi í Einingarblessun á Indlandi í júlí 2010.
Sólbjört hefur síðan 1997 unnið við heilun, gerð námsefnis og kennslu í andlegum þroska á Íslandi, Noregi og Bandaríkjunum.
Skólinn spannar þrjú ár og er starfræktur frá september til maíloka hvert ár.
Um námið
Í náminu tekur nemandinn virkan þátt í tímum með hugleiðslu, umræðum og tjáningu á upplifun, í orði og litum. Stór þáttur í náminu er þjálfun einbeitingar, efling skynfæra og fíngerðari skynjunar. Á milli tíma vinnur hver og einn nemandi heimaverkefni sem spannað geta allt frá 5 mínútum eða út námsárið.
Með þessari vinnu lærir einstaklingurinn að þekkja betur styrkleika og veikleika sína. Hann lærir hvar hann stendur vel að vígi og hvernig má styrkja þá þætti sem vinna þarf með. Námið styður nemandann í að styrkja sig og efla og að taka skref sem stuðla að auknum þroska og innihaldsríkara lífi.
Fyrsta ár situr skólann á þriðjudögum milli 18:30 og 21:00 og hefst skólinn 15. september Árgjald er 85.000 Skráning stendur nú yfir.
Til að fá nánari upplýsingar um hvert ár notar þú hnappana á vinstri hönd.
Til að skrá þig eða fá nánari upplýsingar getur þú sent póst á solbjort@ljosheimar.is eða hringt í síma 862 4546
|