|
Ljósheimar
|
Sólbjört Guðmundsdóttir, forstöðumaður Ljósheima. s. 862 4546 Netfang: solbjort@ljosheimar.is. Sólbjört er annar stofnenda Ljósheima. Frá 1997 til haustsins 2005 vann hún við heilun og orkuráðgjöf í fullu starfi auk þess að kenna fjölda námskeiða. Síðan 2005 hefur hún einbeitt sér alfarið að þróun kennsluefnis og námskeiðahaldi. Hún heldur einnig utan um Ljósheimaskólann sem er þriggja ára nám.
Hún hefur skipulagt og leitt ferðir til helgra staða á vegum Ljósheima. Þessar ferðir eru að öllu jöfnu farnar að vori eða snemma sumars.
Nám sitt hefur Sólbjört sótt nám sitt víða, til Bandaríkjanna, Bretlands, Ítalíu og Skandinavíu og auðvitað á Íslandi. Hún er útskrifuð frá Etherikos School of Energy Healing and Spiritual Studies, er NLP practitioner og reikimeistari auk þess sem hún hefur sótt óteljandi námskeið um tengd efni.
Sólbjört býður ekki upp á einkatíma lengur. |
| | | | Sóley Rut Ísleifsdóttir, heilun, höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð s. 849-3393, netfang: soleyrut@ljosheimar.is Sóley Rut hefur starfað við heilun frá 2003 og hefur lokið III. stigi í reiki og 1. ár í heilunarskóla Karinu Becker (Barbara Brennan heilun). Auk þess situr hún nú 1. ár Ljósheimaskóla og hefur lært til Einingarathafnar (Deeksha/Oneness Blessing). Sóley lauk námi í höfubeina- og spjaldhryggjarmeðferð árið 2009 og hefur að auki lært sérstaklega að meðhöndla börn. Hún býður fólk á öllum aldri velkomið til sín. |  | | | | Guðrún Helga Ívarsdóttir, heilsunudd s. 869-9485,netfang: gudrunhelga@ljosheimar.is Guðrún Helga Ívarsdóttir útskrifaðist sem nuddari frá Nuddskóla Íslands í maí 2003. Við vinnu sína notar hún jöfnum höndum klassískt nudd, svæðameðferð (þar sem unnið er á viðbragðasvæðum á fótum nuddþega), ilmkjarnaolíu- og sogæðanudd og trigger punkta auk þess sem hún notar kristalla og steina í nuddinu til að það verði enn áhrifameira.
Viljir þú ná slökun og ró fyrir líkama og huga, láta vinna á vöðvabólgunni eða losa þig við strengina eftir ræktina gæti nudd verið eitthvað fyrir þig. Guðrún Helga býður fólk á öllum aldri velkomið.
|  | | | | Kolbrún Erla Matthíasdóttir, heilsunudd s. 891-6414, netfang kolbrun@ljosheimar.is
Kolbrún Erla útskrifaðist sem heilsunuddari frá Nuddskóla Íslands í maí 2007. Hún vinnur út frá hugmyndum um heildrænt nudd, sem gengur út frá því að hugur, líkami og sál séu ein heild sem hvetur til samspils orku og efnis. Heildrænt nudd er óbundið formum og hvert og eitt nudd miðað við þarfir nuddþega hverju sinni. Þar blandar hún saman klassísku nuddi, svæðanuddi, sogaæðanuddi, triggerpunktum og djúpvefjanuddi. Einnig notar hún ilmkjarnaolíur í nuddinu. Kolbrún sækir reglulega námskeið til að auka við þekkingu sína.
Kostir nudds eru ótvíræðir við að mýkja vöðva og auka allt flæði í líkamanum. Það gefur góða slökun og steitulosun og örvar alla starfsemi líkamans. |  | | | | Sigríður Björk Gunnarsdóttir, höfuðbeina-og spjaldhryggjarmeðferð, Venusarheilun, heilun og eyrnakerti. s. 820 7220 netfang: sigga@ljosheimar.is Höfuðbeina-og spjaldhryggjarmeðferð gengur út á að losa um spennu og stíflur sem myndast í líkamanum við ýmis áföl og áverka. Venusarheilun snýst fyrst og fremst um heilun hjartans sem leiðir til jöfnunar alls orkukerfis líkamans. Í heilun á orkustöðvum og áru tengir Sigga sig við þá orku sem hver og einn þarf og er tilbúin að meðtaka, markmiðið er að finna rót vandans og koma einstaklingnum í nýtt orkulegt jafnvægi. Eyrnakerti eru góð við vandamálum í eyrum , ennis- og kinnholum og öðru sem tengist höfði. Allar meðferðirnar veita slökun og leiða hugann frá áhyggjum hversdagsins, oft blandast meðferðirnar saman en það fer eftir þörfum einstaklingsins. Sigga hefur lokið sex námskeiðum í Upledger höfuðbeina-og sjaldhryggjarmeðferð, auk fjölda námskeiða í heilun og annarra námskeiða sem þroska andann. |
| | | | Guðrún Ingólfsdóttir, bowentækni, höfuðbeina- og spjaldhryggjameðferð og heilun. s. 863 0909 netfang:gudruning@ljosheimar.is
Guðrún hefur lokið námi í Bowentækni (2007) og höfuðbeina-og spjaldhryggjameðferð (2009) og situr reglulega námskeið til símenntunar í báðum fögum. Hún er reikimeistari (2006) og hefur lokið tveggja ára heilunarnámi hjá Karinu Becker sem kennir Barböru Brennan heilunartæknina (2008). Hún situr nú 3. ár Ljósheimaskólans (2009). Guðrún sat nýverið námskeið hjá Dr. Fauré Anderson sem hefur þróað nýjar aðferðir sem gera það mögulegt að nota höfuðbeina-og spjaldhryggja aðferðafræði í svæðameðferð. En í þessari meðferð er unnið á heilataugunum á tánum.
Guðrún er snyrtifræðingur og rak snyrtistofu ásamt verslun til margra ára.
|  | | | | Unnur Einarsdóttir, heilsunudd og heilun s. 699 4849 Unnur útskrifaðist sem heilsunuddari frá Nuddskóla Íslands 1996 og hefur allar götur síðan unnið sem heilsunuddari. Sama ár lauk hún I. stigi í Pólun. Árið 1998 lauk hún nálastungunámi á Íslandi. Unnur hefur einnig lokið tveggja ára heilunarnámi hjá Karinu Becker sem kennir Barböru Brennan heilunartæknina (2008).
Unnur hefur í vinnu sinni sérhæft sig í að vinna með orkubrautir líkamans samkvæmt kínverskum nálastungufræðum. Í gegnum árin hefur hún unnið mikið með barnshafandi konum en bíður að sjálfsögðu alla velkomna til sín. |  | | | |
|
|
|
Speki
Það eru tvær leiðir til þess að lifa lífinu...önnur er að trúa að ekkert sé kraftaverk...hin er að trúa því að allt sé kraftaverk -Albert Einstein
Kyrrðarstund
Við í Ljósheimum bjóðum upp á kyrrðar- og heilunarstund í hádeginu frá 12:15 - 12:45, er hún vikulega, alltaf á mánudögum. Aldrei hefur verið mikilvægara að finna kyrrðina innra, að sækja sér birtu og heilun. Við vonum að sem flestir nýti sér þetta og taki fjölskyldu sína, vini og vinnufélaga með :) Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
|