|
Ljósheimar eru miðstöð fyrir alla þá sem vilja vinna í sjálfum sér, fræðast, nálgast upplýsingar og víkka út heimsmynd sína. Hjá okkur finnur þú fallegt tehús, verslun sem býður upp á mikið úrval af vörum fyrir manneskjuna auk gripa sem auðga og fegra heimilið. Einnig má í Ljósheimum finna bókasafn ýmissa fræðibóka.
Við bjóðum upp á fjölda námskeiða hérlendra sem erlendra kennara auk þess sem við Ljósheima er starfræktur 4 ára skóli. Í Ljósheimum starfar þéttur hópur fagfólks á breiðu sviði. Við bjóðum m.a. upp á tíma í fjölda tegunda heilunar og nudds, svæðameðferð, bowen meðferð, nálastungu og höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð. Hjartanlega velkomin í Ljósheima! |
|
|
Ljósheimadagur - sunnudaginn 5. september |
|
Við bjóðum alla velkomna á opið hús, Ljósheimadag á sunnudaginn kemur milli 14 og 17. Að venju bjóðum við upp á prufutíma gegn vægu gjald. Má þar nefna bowen, ýmsar tegundir heilunar og nudds og höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð. Nemendur úr Ljósheimaskóla lesa í englaspil og tarotspil. Við kynnum einnig Ljósheimaskólann og haustdagskrána okkar. Einnig verða Daniel Coaten alkemisti og grasalæknir og Bryndís Einarsdóttir með kynningu á frábærum lífrænum vörum sínum sem hafa nýlega fengið vottun frá Túni. Sérstakir tilboðsdagar í versluninni hefjast á sunnudaginn, 20-50% afsláttur af hinum ýmsu vörum og tveir fyrir einn af völdum klútum og slæðum Dagskrá í sal: 14:20 Einingarblessun 15:20 Kynning á Ljósheimaskóla 16:00 Hópheilun 17:45 Hugleiðsla
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 6 af 61 |