top of page

Grunnnámskeið í Iyengar jóga

 

Á námskeiðinu fá nemendur innsýn í helstu standandi stöður í Iyengar jóga, hvernig við nálgumst stöðurnar og hvernig við notum hjálpartæki til að skala stöðurnar þannig að við fáum sem mest út úr þeim.  Kjörið tækifæri fyrir byrjendur í jóga sem og þá sem eru ekki kunnugir Iyengar jóga.

 

Þú munt ekki týnast í þvögunni því hver og einn fær góða athygli og kennslu um hvernig jógastöður eru gerðar á öruggan hátt með áherslu á rétta líkamsstöðu sem leyfir þér að fá sem mest út úr hverri jógastöðu. Skölun á æfingum sem henta þínum líkama og notkun hinna ýmsu hjálpartækja (td. kubbar, belti, teppi) gera öllum kleift að mæta á dýnuna með bros á vör og iðka af ánægju.

 

Stirðustu líkamar geta iðkað Iyengar jóga af öryggi og með árangri. Námskeiðið er fyrir allar líkamsgerðir og eru allir velkomnir.

Hvenær: 5 vikur, frá 7. september - 5. október, fimmtudaga 20-21:15. 


Kostnaður: 18.000 og frír aðgangur að öðrum tímum í Jógasalnum meðan námskeiðið varir og eru þátttakendur hvattir til að mæta í amk. 1 Iyengar tíma auk námskeiðstíma.

Kennari námskeiðsins er Pálmi Símonarson. Hann hefur kennt Aikido í 15 ár og numið jóga á grunni Iyengar hjá Francois Raoult í jógakennaranámi hans í Ljósheimum.

Skráning og nánari upplýsingar á ljosheimar@ljosheimar.is eða hjá Pálma í síma 897-4675.

bottom of page