Accountant & Co

Grunnnámskeið í jóga á grunni Iyengar (hatha)
Á námskeiðinu fá nemendur innsýn í grunnstöður Iyengar jóga (hatha), hvernig við nálgumst þær og hvernig við notum hjálpartæki til að skala stöðurnar þannig að við fáum sem mest út úr þeim.
Kjörið tækifæri fyrir byrjendur í jóga sem og þá sem eru ekki kunnugir Iyengar jóga. Þú munt ekki týnast í þvögunni því hver og einn fær góða athygli og kennslu um hvernig jógastöður eru gerðar á öruggan hátt með áherslu á rétta líkamsstöðu sem leyfir þér að fá sem mest út úr hverri jógastöðu. Skölun á æfingum sem henta þínum líkama og notkun hinna ýmsu hjálpartækja (td. kubbar, belti, teppi) gera öllum kleift að mæta á dýnuna með bros á vör og iðka af ánægju. Stirðustu líkamar geta iðkað Iyengar jóga af öryggi og með árangri. Námskeiðið er fyrir allar líkamsgerðir og eru allir velkomnir.
Hvenær: 4 vikur, frá 10. sept - 1. okt., mánudaga 18:30-19:45.
Kostnaður: 14.000 og frír aðgangur að öðrum tímum í Jógasalnum meðan námskeiðið varir og eru þátttakendur hvattir til að mæta í amk. 1 Iyengar tíma auk námskeiðstíma.
Kennarar námskeiðsins eru Alda Pálsdóttir og Pálmi Símonarson. Þau eru bæði útskrfuð úr Jógakennarnámi hjá Francois Raoult í Ljósheimum og sitja nú námið í annað sinn.
Skráning og nánari upplýsingar á ljosheimar@ljosheimar.is eða hjá Pálma í síma 897-4675
Reikningsnúmer 303-26-3260, kt. 430902-3260, IJ í skýringu.
Contact Us
Accountant & Co
Tel: 123-456-7890
Email: info@mysite.com
Address: 2601 Mission St.
San Francisco, CA 94110
Socialise With Us
Members


© 2023 by Accountant & Co. Proudly created with Wix.com